Vörulýsing
440 l. Kista ætluð undir salt eða sand á hálar gangstéttar og vegi. Einnig nýtast þær vel sem geymsluílát til dæmis á leikskólum, íþróttavöllum, við fjölbýlishús og víðar.
Kisturnar sjálfar eru einbyrðungar en lokin tvöföld. Ráðlegast erað setja hespur á kisturnar og loka þeim þannig tryggilega og hindra að þau fjúki upp. Lokin leggjast alveg niður með bakhliðinni á kistunum sem kemur í veg fyrir að þau spennist af.
Kisturnar staflast hver ofan á aðra sem minnkar stórlega rúmmál bæði við flutning og geymslu. Þær eru gular á lit og sjást því auðveldlega í umhverfinu.