1971: Fyrirtækið stofnað í Borgarnesi.
1983: Hverfisteypudeild stofnuð í Kópavogi.
1988: Útflutningur á framleiðsluvörum Borgarplasts hefst, aðallega á einangruðum fiskikerjum til Danmerkur.
1989: Vöruþróun: Fyrsta hverfisteypufyrirtækið í heiminum til að nota þanið PE sem einangrun í endurvinnanleg ker. Eykur styrk og burðargetu keranna verulega.
1993: ISO 9001 vottun, fyrst íslenskra iðnfyrirtækja, annað hverfismótunarfyrirtækja í heiminum.
1994: Verksmiðjan í Borgarnesi vottuð samkvæmt ISO 9001.
1998: Útflutningur náði til 40 landa í öllum heimsálfum.
1999: Hverfisteypudeildin á Seltjarnarnesi hlýtur ISO 14001 vottun, fyrst iðnfyrirtækja í eigu íslendinga. 70-75% markaðshlutdeild á heimamarkaði fyrir einangruð ker.Vöruþróun: Kenniker - nýjung á kermarkaði. Viðurkenning fyrir áhugaverðustu nýjungina á íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi.ISO 6780 (alþj. flutningastaðall) einangruð ker sett á markað.
2000: Umhverfi: Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins kuðungurinn veitt Borgarplasti fyrir árið 1999. Forvarnarverðlaun Tryggingarmiðstöðvarinnar hf. "Varbergið", árið 2000 fyrir,, framúrskarandi forvarnarstarf",
2002: Umhverfi: Fyrst fyrirtækja í heiminum að nota endurunnið hauggas (metan) í stað olíu sem orkugjafa á framleiðsluvélar og notað á framleiðsluvélanar í verksmiðjunni á Seltjarnarnesi. Hauggasið er unnið úr sorphaugum í Álfsnesi af Metan hf.